![]() |
Einföld uppskrift að þessum eðal kokkteili. Með þessari útfærslu hafa vinsældirnar aukist á ný. Hér eru það fersk jarðarber auk myntulaufa sem gefa drykknum þetta sérstaka bragð og útlit. |
| Aðferð Myljið saman 1 og ½ jarðarber, hrásykur og 4 myntublöð auk safa úr 1/2 limeávexti. Setjið í glas, hrærið. Bætið Bacardi út í, fyllið glasið upp með sódavatni ásamt muldum ísnum. Ekki hræra í glasinu eftir að vínið er komið út í, drykkurinn getur orðið gruggugur og ólystugri. Berið fram skreytt með 3 jarðarberjahelmingum, myntulaufum og skerið aðeins upp í fjórða jarðarberið og festið á glasbrúnina. |
Innihald 50 ml. Bacardi Rom 4 stk. Jarðarber fersk 6 stk. Myntublöð fersk 3 msk. Hrásykur 1/2 stk. Lime ávöxtur 25 ml. Sódavatn Mulinn ís |





