Mexikóskur svínapottur

Senda til vinar Prenta út
( 2 - atkvæði )
Mexikóskur svínapottur Svínakjöt hefur fengist á góðu verði undanfarin misseri, því er þessi matarmikli pottréttur bæði ódýr og auðveldur. Frekar bragðmildur eins og hann er hér en þeir sem vilja sterka rétti gætu t.d. bætt jalapeno út í eða öðrum chili.

Aðferð
Hitið olíu í djúpum potti. Saxið lauka, skerið papriku gróft og sneyðið gulrætur, mýkið þetta aðeins í olíunni. Takið til hliðar. Brúnið svínaskjötið á öllum hliðum í dálítilli olíu, betra að steikja ekki of mikið í senn. Setjið allt í pottinn og bætið við svínakrafti ásamt vatni þannig að fljóti yfir, látið malla við vægan hita í 45-60 mínútur, hrærið í annað slagið. Fræhreinsið chili og saxið ásamt hvítlauk og kryddjurtum, bætið í pottinn. Setjið tómatana í réttinn og bragðbætið með tómatpurre, salti og nýmuldum svörtum pipar. Berið fram rjúkandi heitt með Tortilla flögum og sýrðum rjóma. Guacamole á vel við réttinn einnig hrísgrjón.
Innihald
1 kg. Svínagúllas
2-3 stk. Gulrætur
1-2 stk. Laukur
4-5 rif Hvítlauk
2 x ½ ds. Tómatar maukaðir
1 stk. Græn paprika
3 msk. Kóríander
2 -3 msk. Oregano
1 stk. Chili
3 msk. Tómatpurre
2 teningar Svínakraftur
Salt og svartur pipar
Olía
Vatn
Sýrður rjómi
Tortilla flögur
 

Fróðleikur

Fitublettir í fatnaði

article thumbnail

Fjarlægið fitubletti úr fötum með því að hella Coke eða Pepsi, (áríðandi: með gos [ ... ]


Risotto

article thumbnail

Risotto: Ein algengasta aðferðin á Ítalíu við eldun á hrísgrjónum. Oftast notuð se [ ... ]


Kostaðir tenglar

Úr orðabókinni

Molasses:      Enska heitið yfir sýróp sem verður til við vinnslu á sykri. Sem hér á landi nefnist: Melassi. Getur verið frá því að vera gullinbrúnt til þess að vera nærri svart. Gefur púðursykri lit og bragð. Algengt í enskum og amerískum uppskriftum.  Oft notað sem sætuefni yfir pönnukökur og slíkt. Þykir ómissandi í pipar og engiferkökur.

malla.is mælir með

Borði

malla.is á facebook