Grillaður Silungur

Senda til vinar Prenta út
( 3 - atkvæði )
regnbogasilungur Þetta er mjög einföld og auðveld uppskrift að grilluðum silungi. Sömu aðferð er einnig gott að nota við fleiri fisktegundir eins og ýsu og smáþorsk.
Aðferð
Hreinsið fiskinn, pennslið hann með ólífuolíu, innan sem utan og nuddið með salti og sítrónupipar. Saxið sítrónuna frekar gróft ásamt púrrulauk, steinselju og spínati og setjið inn í fiskinn. Vefjið fiskinn í álpappír, lokið vel. Gott að láta standa í 15-20 mín. Grillið við meðalhita í u.þ.b. 10 mínútur, snúið af og til. Berið fram með soðinu af fiskinum, kartöflum og fersku grænmeti.
Innihald
2 pund Bleikja
1 stk. Sítróna
1 stk. Púrra
1 búnt Steinselja
1 lúka Spínat
Sítrónupipar
Maldon Salt
Ólífuolía

 

 

 

 

 

 

Fróðleikur

Fitublettir í fatnaði

article thumbnail

Fjarlægið fitubletti úr fötum með því að hella Coke eða Pepsi, (áríðandi: með gos [ ... ]


Mesclun

article thumbnail

Mesclun:   Blanda af nýsprotnum grænum jurtum eins og salati, spinati, klettasalat, fífla [ ... ]


Kostaðir tenglar

Úr orðabókinni

Karrí:    Curry á ensku, er ekki raunverulegt krydd heldur kryddblanda, upprunnin frá Indlandi.  Lesa meira.

malla.is mælir með

Borði

malla.is á facebook