![]() |
Bragðgóð GRILL-sósa til að pensla grillkjötið, hvort sem er lamb, svín eða annað. Fita og sykur í lágmarki, því er lítil hætta á að grillið logi og komi í stað varðeldsins! |
| Aðferð Saxið laukana fínt og mýkið örlítið í olíu í potti, bætið því sem eftir er í pottinn og látið malla í 15-20 mín. eða þar til þykktin er að þínu skapi. Bragðið til og bætið með Tabascosósu og svörtum pipar. |
Innihald 2 dl. Tómatsósa 2 stk. Rauðlaukur 2 msk. Rauðvínsedik 1 msk. Worchestershiresósa 3 msk. Púðursykur Hnífsoddur. Chilipipar-dufti Hnífsoddur. Svartur Pipar 3-4 dropar Tabascosósa 3-4 msk. Ólívuolía |





