Smákökur

Piparkökur með heilhveiti

Senda til vinar Prenta út
( 1 - atkvæði )
PiparkÖkur með heilhveiti. Piparkökur með heilhveiti! Dálítið óvenjulegt en mjög gott. Geymast vel og eru bestar ef þær fá að brjóta sig aðeins.
 

Banana muffins.

Senda til vinar Prenta út
( 3 - atkvæði )
Banana muffins. Tilvalið að baka þessi ljúfengu muffins úr banönum sem eru farnir að dökkna.  Fást ca. 12 muffins úr uppskriftinni.

 

 

Kanillsnúðar

Senda til vinar Prenta út
( 3 - atkvæði )
Kanillsnúðar. Dúnmjúkir kanillsnúðar sem auðvelt er að baka og geymast vel í frysti. Eins og nýbakaðir eftir örlitla stund í örbylgjuof.
 

Kókostoppar

Senda til vinar Prenta út
( 1 - atkvæði )
Vinsælar smákökur með fínlegu kókosbragði. Mjög auðveldar og fljótlegar kökur
Aðferð
Sykur og egg þeytt létt og ljóst.
Kókosmjöli og gróft söxuðu súkkulaði bætt varlega út í.
Sett með teskeið í toppa á smurða bökunarplötu.
Bakið ljósbrúnar við 170°C í u.þ.b.15 mín.
Innihald
3stk. Egg
225 gr. Strásykur
300 gr. Kókosmjöl
100 gr. Suðusúkkulaði
 

Lionbar kökur.

Senda til vinar Prenta út
( 2 - atkvæði )
Gómsætar smákökur, vinsælar hjá ungviðinu. Auðveldar í vinnslu.
Aðferð
Hrærið saman smjörlíki og sykur, bætið eggjum og vanilludroðum út í.
Sigtið þurrefnin og blandið saman við smátt og smátt.
Saxið súkkulaðið og setjið saman við. Sett með teskeið á smurða bökunarplötu
hafið gott bil á milli því kökurnar renna út.
Bakið við 175°C í u.þ.b. 8 mínútur. Varist að ofbaka.
Innihald
160 gr. Hveiti
¼ tsk. Matarsódi
150 gr. Púðursykur
1 stk. Egg
100 gr. Suðusúkkulaði
100 gr. Lion bar
80 gr. Smjörlíki
½  tsk. Salt
Vanilludropar
 
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Fróðleikur

Lime

article thumbnail

Lime oft nefndur Límóna á íslensku er sítrusávöxtur ættaður frá Indlandi. Litir [ ... ]


Þunguðum konum ráðlagt að draga úr kaffidrykkju.

article thumbnail

Breska matvælastofnunin (FSA) ráðleggur verðandi mæðrum að draga úr allri neyslu kof [ ... ]


Kostaðir tenglar

Úr orðabókinni

Fiskdeig:   Fiskfars. Hakkaður fiskur

malla.is mælir með

Borði

malla.is á facebook