Bakað grænmæti

Grillaðir kartöflubátar

Senda til vinar Prenta út
( 2 - atkvæði )
grillkartboat Það tekur ekki langa stund að grilla þessa frábæru kartöflubáta. Kryddið getur hver valið eftir eigin smekk.
Uppskriftin er áætluð fyrir fjóra.






 

Grænmetiskaka

Senda til vinar Prenta út
grnmetiskaka2 Ljúfeng og góð grænmetiskaka, tilvalin sem forréttur eða sjálfstæður réttur með brauði. Grænmeti er hægt að velja eftir því sem manni líkar best eða hvað er til í kælinum hverju sinni. Geymist vel í kæli.

 

Grænmetis lasagne.

Senda til vinar Prenta út
( 2 - atkvæði )
Þetta grænmetis lasagne er bæði einstaklega ljúffengt og hollt, auk þess að vera auðvelt í matreiðslu.graenm_lasagna
Aðferð
Steikið grænmetið í feiti, bætið tómötum, tómatkraftir og soði saman við og látið sjóða góða stund. Smyrjið eldfast fat og þekið botninn með lasagneplötum, setjið lag af sósunni, síðan lag af kotasælu og osti. Þetta er endurtekið eftir þörfum og endað á tómatsósunni sem efsta lagi.
Rífið parmasan ost yfir og bakið í ofni í 30-40 mín. við 175°C hita.
Innihald
Lasagne blöð græn.
Sósan - Innihald
2 stk. Lauk
5-6 stk. Hvítlauksrif
200 gr. Gulrætur
250 gr. Sveppir
1 ds.  Tómatar
2-3 msk. Tómatkraftur
2 dl. Grænmetissoð
2 ds. Kotasæla
1 poki Mozzarellaostur
Permasan ostur
Estragon, Rosmarin
Salt og pipar
Olía til steikinga
 

Sveppir fylltir gráðosti.

Senda til vinar Prenta út
( 3 - atkvæði )
thumb_svepp_fylltir Einstaklega góðir sem fingramatur eða meðlæti með kjöti.
Aðferð
Burstið sveppi og fjarlægið leggina. Hrærið gráðostinn mjúkann með
rjómanum og setjið í sveppina og bakið í ofni við 200°C í 5 – 6 mín.
Innihald
20 Sveppir
100 gr. Gráðostur
1 dl. Rjómi
 

Fróðleikur

Að skera ost

article thumbnail

Oft er betra að skera ost ef ostaskerinn er geymdur í kæli með ostinum, þá er sama hitas [ ... ]


Geymsluþol í frysti

article thumbnail

Geymsluþol matvöru fer mikið eftir frágangi, góður undirbúningur fyrir frystingu get [ ... ]


Kostaðir tenglar

Úr orðabókinni

 Melassi:     Sýróp sem verður til við vinnslu á sykri. Á ensku nefnt molasses. Getur verið frá því að vera gullinbrúnt til þess að vera nærri svart. Gefur púðursykri lit og bragð. Algengt í enskum og amerískum uppskriftum.  Oft notað sem sætuefni yfir pönnukökur og slíkt. Þykir ómissandi í pipar og engiferkökur.

malla.is mælir með

Borði

malla.is á facebook