Kryddjurtir

Afgangar af kryddjurtum

Senda til vinar Prenta út

Afgangar af kryddjurtum.

Ferskar kryddjurtir vilja skemmast fljótt því er gott að frysta afganga til seinni nota. Saxið kryddið, setjið í klakaform og frystið. Þegar molarnir eru frosnir þá eru þeir settir í frystipoka eða annað ílát. Munið að merkja.
Nú eigið þið þessa fínu kryddmola þegar hentar.

Ferskar kryddjurtir í körfu
 

Íssópur

Senda til vinar Prenta út
Íssópur : Hyssop. Vex víða í görðum sem skrautjurt. Gefur milt myntubragð. Ekki mikið notuð í matargerð en kemur þó fyrir í uppskriftum, einkum í salöt, skreytingar og líkjöra. Te- gert af Íssóp sagt gott við gigtar og brjóstverkjum og draga úr vindgangi.Nota má salvíu í stað íssóps í matargerð. Kvistur af Íssóp   Íssópur
 

Timian

Senda til vinar Prenta út

Timian:  Smávaxin kryddjurt með dökkgræn blöð, nefnist einnig Garðablóðberg. Hentar með öllum  tegundum af kjötitimian mikið notað með lambakjöti, allskonar villibráð og í kryddolíur. Timian er ómissandi í ítalskar kryddblöndur, með spaghetti og á pizzur.  Timian-te er sagt  gott gegn kvefi og innfúensum auk þess að lina timburmenn.

 

Oregano

Senda til vinar Prenta út
Oreganooreganogrein  Í Ítalskri matargerð er oregano ómissandi. Í réttum með tómat gegnir oregano lykilhlutverki ásamt mozzarella ostinum, t.d. á pizzum og í pastaréttum. Í Franskri matargerð er það nátengt paté-inu. Oregano er álitið nauðsynlegt í matargerð Grikklandi og Spánverjar nota það m.a. á paellu.
 

Steinselja

Senda til vinar Prenta út

Steinselja.

Parsley. Petroselinum crispum. 000000153443
Er bæði notuð fersk og þurrkuð, einkum sem skraut. Með grill og kjötréttum er hún oft notuð í heilum kvistum en algengara er að hún sé söxuð og stráð yfir réttina. Í kryddvendi er hún sjálfsögð. Söxuð steinselja á vel við hvítlauk og er talin draga úr hvítlaukslykt. Við þurrkun missir jurtin mikið af ferkum ilminum sem er eitt það helsta sem gerir hana eftirsótta. Ekki skal sjóða steinselju lengi, laufin skal setja í réttinn skömmu fyrir framreiðslu en stöngla má elda nokkuð lengur, til að fá meira bragð í réttinn.
Ýmis afbrigði eru til af steinselju;

Hrokkinblaðsteinselja.hrokkinblsteinselja

Er algeng í matargerð á Íslandi. Hún geymist vel í kæliskáp er falleg heil og fersk í skreytingar en er bragðminna en mörg önnur afbrigði.

 

Sléttblaðsteinselja.

slettbladsteinselja1Oft nefnd ítölsk eða frönsk steinselja. Hún er bragðmeiri en ekki jafn römm og Hrokkinblaðsteinseljan

 

 
Fleiri greinar...
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Fróðleikur

Mataræði hefur áhrif á námsárangur.

article thumbnail

,,Feed Me Better". Herferð sjónvarpskokksins Jamie Oliver fyrir bættu mataræði  virðist vera [ ... ]


Kjúklingabaunir

article thumbnail

Kjúklingabaunir:    Eru raunverulega fræ, en oftast flokkaðar með baunum. Í útliti er [ ... ]


Kostaðir tenglar

Úr orðabókinni

Malla:   Matvælum haldið við suðumark, svo rétt sjáist á yfirborði að rétturinn sjóði. Oft notað við lengri eldun t.d. á pottréttum og súpum, hráefni mýkjast við lengri suðu.

malla.is mælir með

Borði

malla.is á facebook