Krydd

Afgangar af kryddjurtum

Senda til vinar Prenta út

Afgangar af kryddjurtum.

Ferskar kryddjurtir vilja skemmast fljótt því er gott að frysta afganga til seinni nota. Saxið kryddið, setjið í klakaform og frystið. Þegar molarnir eru frosnir þá eru þeir settir í frystipoka eða annað ílát. Munið að merkja.
Nú eigið þið þessa fínu kryddmola þegar hentar.

Ferskar kryddjurtir í körfu
 

Íssópur

Senda til vinar Prenta út
Íssópur : Hyssop. Vex víða í görðum sem skrautjurt. Gefur milt myntubragð. Ekki mikið notuð í matargerð en kemur þó fyrir í uppskriftum, einkum í salöt, skreytingar og líkjöra. Te- gert af Íssóp sagt gott við gigtar og brjóstverkjum og draga úr vindgangi.Nota má salvíu í stað íssóps í matargerð. Kvistur af Íssóp   Íssópur
 

Timian

Senda til vinar Prenta út

Timian:  Smávaxin kryddjurt með dökkgræn blöð, nefnist einnig Garðablóðberg. Hentar með öllum  tegundum af kjötitimian mikið notað með lambakjöti, allskonar villibráð og í kryddolíur. Timian er ómissandi í ítalskar kryddblöndur, með spaghetti og á pizzur.  Timian-te er sagt  gott gegn kvefi og innfúensum auk þess að lina timburmenn.

 

Oregano

Senda til vinar Prenta út
Oreganooreganogrein  Í Ítalskri matargerð er oregano ómissandi. Í réttum með tómat gegnir oregano lykilhlutverki ásamt mozzarella ostinum, t.d. á pizzum og í pastaréttum. Í Franskri matargerð er það nátengt paté-inu. Oregano er álitið nauðsynlegt í matargerð Grikklandi og Spánverjar nota það m.a. á paellu.
 

Karrí

Senda til vinar Prenta út

karri_skeidKarrí:    Er ekki raunverulegt krydd heldur kryddblanda, upprunnin frá Indlandi.  Karrí inniheldur Turmerik sem gefur blöndunni gula litinn, auk þess cayenne pipar, svartan pipar, kóríander, kúmín (broddkúmen) og engifer.  Karrí er misjafnlega sterk sem ræðst af hve mikill cayenne pipar er í blöndunni. Algengt er að nota hreina jógúrt með karríréttum til að milda þá.   Mikil munur getur verið á hve sterkar karríblöndur eru eftir landsvæðum á Indlandi. Réttir frá Norður-Indlandi eru mun bragðsterkari en sunnar í landinu. Auk Indverska karrísins eru karríblöndur frá Tailandi vel þekktar á vesturlöndum. Að grunni eru sömu krydd í Tailenskum karríblöndum og þeim Indversku, en þar að auki eru ýmis krydd, því geta þau verið fjölbreitt að lit.

 
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Fróðleikur

Kjúklingabaunir

article thumbnail

Kjúklingabaunir:    Eru raunverulega fræ, en oftast flokkaðar með baunum. Í útliti er [ ... ]


Risotto

article thumbnail

Risotto: Ein algengasta aðferðin á Ítalíu við eldun á hrísgrjónum. Oftast notuð se [ ... ]


Kostaðir tenglar

Úr orðabókinni

Ávaxtasafi: Djús, safi af ávöxtum.

malla.is mælir með

Borði

malla.is á facebook