Fyrirvari
  • Please Login
  • Please Login
  • Please Login
  • Please Login
  • Please Login
  • Please Login
  • Please Login

Kjöt

Mexikóskur svínapottur

Senda til vinar Prenta út
( 2 - atkvæði )
Mexikóskur svínapottur Svínakjöt hefur fengist á góðu verði undanfarin misseri, því er þessi matarmikli pottréttur bæði ódýr og auðveldur. Frekar bragðmildur eins og hann er hér en þeir sem vilja sterka rétti gætu t.d. bætt jalapeno út í eða öðrum chili.

 

Kindakæfa

Senda til vinar Prenta út
( 1 - atkvæði )
Kindakaefa Kæfa er alltaf vinsælt álegg á brauð. Ódýr og auðveld að útbúa, tilvalið að nýta súpukjötsbita og álíka í kæfuna. Geymist í marga mánuði í frysti.
 

Grillpinnar með hakkbollum og beikoni.

Senda til vinar Prenta út
Grillpinnar með hakkbollum og beikoni. Ódýr en bragðgóður grillréttur sem gott er að útbúa með fyrirvara og eiga tilbúinn í kæli til að skella á grillið þegar komið er heim eftir vinnu.

 

 

Kjötbollur grillaðar á teini.

Senda til vinar Prenta út
( 2 - atkvæði )
Kjötbollur grillaðar á teini. Ekki þarf alltaf  dýrar steikur til að slá upp girnilegri grillveislu. Börnum finnst spennandi að fá hakkbollur á teini. Einfalt og  fljótlegt, án mikils tilkostnaðar.

 

Grillað Hrefnukjöt

Senda til vinar Prenta út
( 3 - atkvæði )
Hrefnusteik

Hrefnukjöt er frábært á grillið ef maður varast að elda það of mikið. Þessi aðferð er afar einföld, fljótleg og hefur reynst byrjendum vel.
Uppskrift áætluð fyrir fjóra.

 

Lambalæri grillað á teini.

Senda til vinar Prenta út
grill-lamb Safarík lambasteik með mildu hvítlauksbragði. Ráðlegt er að hafa álbakka undir stórum steikum á grillinu svo kjötsafinn renni ekki á glóðina, svo er safinn kjörinn í sósu.

 

Grillaðar Lambakótilettur með Papriku.

Senda til vinar Prenta út
( 1 - atkvæði )
grillkotilett Grillaðar lambakótilettur er nokkuð sem öllum líkar, ljúfengur matur með góðu meðlæti. Uppskrift áætluð fyrir fjóra.
 

Lambalæri með grænmeti.

Senda til vinar Prenta út
( 1 - atkvæði )
Lambalæri með grænmeti. Lambalæri er sígilt á borðum landsmanna. Þessi uppskrift er einföld, ekkert vesen en kjötið einstaklega ljúfengt og gott.
 

Nauta pottréttur

Senda til vinar Prenta út
( 2 - atkvæði )
Nautapottrettur Matarmikill og bragðgóður pottréttur, hentar vel sem veisluréttur,
betra er að búa hann til með góðum fyrirvara. Afganga má frysta.

 

Saltkjöt og baunir

Senda til vinar Prenta út
( 4 - atkvæði )
baunasupa Löng hefð er fyrir salkjöti og baunum á borðum landsmanna. Á sprengidaginn er gaman að koma saman í góðra vina hópi yfir þessum þjóðlega og ódýra mat.
 
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Fróðleikur

Mataræði hefur áhrif á námsárangur.

article thumbnail

,,Feed Me Better". Herferð sjónvarpskokksins Jamie Oliver fyrir bættu mataræði  virðist vera [ ... ]


Kúrbítur

article thumbnail

  Kúrbítur:   Einnig nefndur dvergbítur, súkkíni, zucchini, courgette, squash. Æ [ ... ]


Kostaðir tenglar

Úr orðabókinni

Ediksýra: Framleidd við gerjunn á þynntum vínanda og inniheldur 35 - 45% ediksýru. Ílát t.d. flöskur með ediksýru eiga að vera merkt sem eitur og standa fjarri borðediki, svo ekki verði slys af misgáningi. Í stað borðediks er ediksýra til heimilisnota þynnt út með vatni, oftast í hlutföllunum 1 hluti af ediksýru á móti 7 hlutum af vatni.

malla.is mælir með

Borði

malla.is á facebook